
Eftir gott sumarfrí er komið að því að dusta rykið af göllunum og beltunum, snúa aftur í salinn og hefja æfingar á ný!
Vetrarstarf Karatedeildar Hauka hefst samkvæmt æfingatöflu mánudaginn 31. ágúst næstkomandi.
Nú er rétti tíminn til að mæta aftur, hreyfa sig, læra, bæta sig og – síðast en ekki síst – hafa gaman saman.
Við hlökkum til að sjá fyrri iðkendur aftur og erum spennt að taka á móti nýjum iðkendum.
Æfingar fara fram á 2. hæð í Ásvallalaug eins og áður og þjálfarar hjá deildinni verða áfram Gunnlaugur Sigurðsson, 5. Dan og Kristján Ó. Davíðsson, 2. Dan.
Opið er fyrir skráningar og er hægt að skrá sig hér
Osu!
