Aðalfundur Karatedeildar Hauka fer fram fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:30 í íþróttamiðstöð Hauka við Ásvelli.
Dagskrá fundar samkvæmt lögum.
Stjórn KDH.
Aðalfundur Karatedeildar Hauka fer fram fimmtudaginn 5. mars klukkan 20:30 í íþróttamiðstöð Hauka við Ásvelli.
Dagskrá fundar samkvæmt lögum.
Stjórn KDH.
Laugardaginn 15. febrúar fór fram fyrsta Grand Prix mót Karatesambandsins.
Grand Prix mótaröðin er bikarmótaröð unglinga frá 12 til 17 ára.
Haukar áttu fjóra keppendur á mótinu sem allir stóðu sig afar vel og öll að stíga sín fyrstu skref í keppni.
Bestum árangri Haukafólks náði Signý Ósk Sigurðardóttir í Kumitekeppni 12 ára stúlkna, en hún endaði í 3. sæti í flokknum.
Virkilega vel gert hjá krökkunum og við hlökkum til að fylgjast með þeim á komandi mótum.
Einnig viljum við minna á að febrúar er frír prufumánuður hjá okkur í Karatedeild Hauka í tilefni 30 ára afmælis okkar.
Í tilefni af 30 ára afmæli Karatedeildar Hauka 1. febrúar s.l. höfum við ákveðið að gera febrúar að fríum prufumánuði. Það geta því allir, óháð aldri, komið á byrjendanámskeið í febrúar.
Komdu og prófaðu Karate.
Það er aldrei of seint að byrja.
Æfingar fyrir 11 ára og yngri eru á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 18:00-19:00
Æfingar fyrir 12 ára og eldri eru mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga klukkan 19:00-20:30.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Nýlegar athugasemdir